.jpg) | |
Hnit: 65.075166°N, -22.726727°V |
Sorry english version does not exist, here is the icelandic.Stykkishólmur stendur við Breiðafjörð á norðanverðu Snæfellsnesi. Bærinn er í tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Bærinn stendur á Þórsnesi og er bæjarstæðið einstaklega fallegt. Húsin í bænum gefa Stykkishólmi sérstakt yfirbragð, þar sem tekist hefur að varðveita gömlu bæjarmyndina.
Bæjarbúar í Stykkishólmi eru í daglegu tali nefndir Hólmarar. 1. janúar 2011 voru þeir 1.100 talsins. Það er óhætt að segja að Hólmarar séu félagslyndir því félagslíf blómstrar í bænum. Ótal mörg félög og áhugahópar eru starfræktir allan ársins hring og skipulagt félagsstarf með mesta móti.
Umhverfismál eru mál málanna í Stykkishólmi. Árið 2003 fékk Höfnin í Stykkishólmi Bláfánann og var það í fyrsta skipti að höfn fékk Bláfánann á Íslandi. Grænfánanum var flaggað í Leikskóla Stykkishólms og við yngri deildir Grunnskólans vorið 2007 og í janúar 2008 hófust íbúar handa við að flokka allt sorp.
Árið 2008 fékk Stykkishólmur ásamt öðrum sveitarfélögum á Snæfellsnesi umhverfisvottun og í ár var hún endurnýjuð.
Stykkishólmur skartar fjölbreyttu atvinnulífi. Nokkrir stórir vinnustaðir með ólíka starfsemi eru í bæjarfélaginu og fjölmörg einkafyrirtæki af ýmsum stærðargráðum með fjölþætta starfsemi.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson