 | |
Hnit: 65.701688°N, -21.685386°V |
Sorry english version does not exist, here is the icelandic.Hólmavík er stærsta kauptúnið á Ströndum og er jafnframt verslunar– og þjónustumiðstöð sýslunnar. Hólmavík er í sveitarfélaginu Strandabyggð. Íbúar í þorpinu voru 380 1. desember 2005. Þorpið stendur undir Kálfanesborgum, innan við miðjan Steingrímsfjörð að vestanverðu og hefur byggst úr landi Kálfaness.
Áður en Hólmavíkurþorp varð til var um tíma þurrabúðarlóð í vestanverðri Hólmavíkinni, austan undir Höfðanum. Árið 1883 fluttu Sigurður snikkari og kirkjusmiður Sigurðsson og Guðrún Jónsdóttir frá Felli í Kollafirði að Kálfanesi og bjuggu þar eitt ár. Síðan fluttu þau niður í víkina og byggðu sér nýjan bæ töluvert utar. Sonur þeirra er skáldið Stefán frá Hvítadal og er hann talinn fyrsti maðurinn sem fæddur er á Hólmavík.