Breiðdalsvík er þorp í Breiðdalshreppi og stendur það við samnefnda vík á Austfjörðum. Íbúar voru 139 1. janúar 2011 og hefur þeim fækkað jafnt og þétt á undanförnum árum, voru 218 árið 1988.Víkin Breiðdalsvík er á milli Kambaness og Streitishvarfs og stendur þorpið við hana. Aðalatvinnugvegur þorpsbúa er sjávarútvegur, svo og þjónusta við sveitina og ferðamenn sem eiga leið um.Byggðin á Breiðdalsvík er ekki gömul. Gránufélagið lét reisa þar vörugeymslu um 1889 og árið 1896 reisti Brynesverslun á Seyðisfirði hús efst á Selnesi. Það brann tíu árum síðar en nýtt verslunarhús var reist í staðinn og er það elsta hús þorpsins.
Breiðdalsvík er rólegt þorp við sjóinn.
Þorpið er vinsæll viðkomustaður á Austurlandi.
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com