Kópavogskirkja

Ósk
Séð

Kópavogskirkja var reist á árunum 1958–1962 eftir teikningum frá embætti húsameistara ríkisins sem Hörður Bjarnason veitti forstöðu á þeim tíma. Ragnar Emilsson, arkitekt hjá embættinu, vann ásamt húsameistara mikið að teikningu kirkjunnar.

Grunnur hennar var helgaður þann 16. ágúst árið 1958 og hornsteinn lagður af biskupi Íslands þann 20. nóvember árið eftir. Það var svo þann 16. desember árið 1962 sem kirkjan var vígð af Sigurbirni Einarssyni, þáverandi biskupi Íslands.

Kópavogskirkja er krosskirkja og að því leyti hefðbundin, en bogar hennar, sem svo mjög einkenna hana, gera hana sérstaka og gefa henni í senn bæði tignarlegt og mjúkt yfirbragð.

Kirkjan þykir fögur og góður vitnisburður um þá sem að unnu og er verðug umgjörð um helgihald og tilbeiðslu. Hún stendur á stað sem nefnist Borgir eða Borgarholt, en umhverfi hennar er friðað vegna þeirrar sérstöðu og þess margbreytileika sem það býr yfir.

Frá kirkjunni er útsýni mikið og fagurt, enda eru þeir margir sem koma þangað bæði til að njóta hins mikla útsýnis, skoða kirkjuna og njóta þar friðar og andlegrar uppbyggingar.

Kópavogskirkja stendur á hæð með útsýni.

Suðvesturland

9,743 skoðað

Kópavogskirkja

Kirkjan er kennileiti bæjarins.

Algengar spurningar

Hvar er Kópavogskirkja?
Kópavogskirkja er í Kópavogi á höfuðborgarsvæðinu.
Er Kópavogskirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Kópavogskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Kópavogskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Kópavogskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og aðra viðburði.


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur