Látrabjarg

Ósk
Séð

Látrabjarg er fuglabjarg á Vestfjörðum. Það er stærsta sjávarbjarg Íslands, 14 km að lengd og 441 metra hátt. Látrabjargi er í daglegu tali skipt í fjóra hluta, sem heita Keflavíkurbjarg, Látrabjarg, Bæjarbjarg og Breiðavíkurbjarg. Látrabjarg hefur verið nytjað frá landnámstíð. Það er vestasti oddi Íslands.

Nafnið kemur af orðinu látur.

Björgunarafrekið við Látrabjarg
Togarinn Dhoon strandaði undir Geldingsskorardal í miklu óveðri þann 12. desember 1947 og hófust þá miklar björgunaraðgerðir. Þær stóðu yfir í um þrjá daga og nær allir bændur í grendinni unnu að björguninni. Þrír skipverjar höfðu drukknað áður en björgunarmenn höfðu sigið niður bjargið en 12 sem eftir voru lifandi var öllum bjargað. Ári síðar var gerð heimildarmynd um björgunina sem Óskar Gíslasonleikstýrði. Á meðan á tökum stóð strandaði togarinn Sargon og náði Óskar myndum af þeirri björgun og notaði í heimildarmyndinni. Hún var frumsýnd árið 1949.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Gregor Samsa

 

Björgin eru á Vestfjörðum.

Vestfirðir

1,096 skoðað

Látrabjarg

Einstakt fuglalíf.

Algengar spurningar

Hvar er Látrabjarg?
Látrabjarg er á Vestfjörðum.
Hvers konar náttúruform er Látrabjarg?
Þetta eru há sjávarbjörg.
Er Látrabjarg þekkt fyrir fuglalíf?
Já, svæðið er þekkt fyrir fuglalíf.
Er Látrabjarg náttúrulegt fyrirbæri?
Já, björgin eru náttúrulega mynduð.
Er hægt að heimsækja Látrabjarg?
Já, en varúð er nauðsynleg.


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur