Digraneskirkja var tekið í notkun árið 1994.
Við erum lútersk-evangelískt trúfélag sem byggir á fornri og lifandi hefð í nútíma samfélagi.
Við trúum á Guð eins og Jesús Kristur opinberar okkur hann samkvæmt játningum hinnar lútersku kirkjudeildar.
Að skipulagi þjóðkirkjunnar mynda söfnuðirnir sóknir. Sóknin okkar nær frá Kópavogsgjánni í vestri, er sunnan Nýbýlavegar og nær að Skálaheiði í austri. Smárahvammslandið sunnan Digraneskirkju er allt í okkar sókn. Sóknarbörn eru u.þ.b. 9000 talsins.
Sungin er messa á hverjum sunnudegi kl. 11, börnin fara í sunnudagaskólann sem er í kapellu kirkjunnar á neðri hæð en við erum annaðhvort með þeim niðri eða í messunni í kirkjunni. Í hádeginu borðum við saman léttan hádegisverð og ræðum málin yfir kaffibolla að því loknu.
Í hádeginu á fimmtudögum er bænastund í kirkjunni þar sem við biðjum fyrir söfnuðinum, sjúkum og lasburða og hverju því bænarefni sem óskað er eftir. Bænarefni má skrifa og leggja í sérstakan kassa í anddyri kirkjunnar eða hafa samband við prestinn, kirkjuvörð eða organista.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson