Í Brekkuþorpi er allt að finna sem þurfa þykir í mannlegu samfélagi. Þar er kirkja, skóli, ferðamannaverslun, póstafgreiðsla, kaffistofa og þaðan er rekin útgerð og fiskeldi.
Að Asknesi er hægt að sjá leifar af gamalli hvalstöð, sem reist var af Norðmönnum um aldamótin 1900 og var hún sú stærsta í heiminum á þeim tíma. Þegar umsvif stöðvarinnar voru í hámarki unnu þar um 200 manns en í dag búa aðeins um 40 manns í Mjóafirði öllum.
Samgöngur við Mjóafjörð geta verið erfiðar yfir vetrarmánuðina en Flóabáturinn Anný (s, 476 0005 og 853 3004) gengur allt árið, á milli Brekkuþorps og Neskaupstaðar, tvisvar í viku. Góður vegur liggur um Slenjudal og yfir Mjóafjarðarheiði, en vetraropnun er þar ekki regluleg. Vegur er svo út með firðinum að norðanverðu, allt út að Dalatanga.
Mikið berjaland er í Mjóafirði en frægastur er hann líklega fyrir mikla kyrrð og fallega fossa.
Heimild: Sjá hér