Rauðhólar eru þyrping gervigíga við suðaustur útjaðar Reykjavíkur sem tilheyrir Heiðmörk. Gervigígarnir mynduðust fyrir um 4600 árum þegar Elliðaárhraun rann. Upphaflega voru þeir 80 talsins en hefur fækkað síðustu áratugi sökum efnistöku. Mestur hluti efnisins var nýttur í Reykjavíkurflugvöll á tímum heimstyrjaldarinnar síðari. Rauðhólar hafa verið friðlýstir frá árinu 1961 og fólkvangur frá árinu 1974.
Heimild: Sjá hér
Mynd: SFjalar