Hvanneyri er þéttbýlis- skóla- og kirkjustaður í Andakíl í Borgarbyggð. Á staðnum var lengi stórbýli og taldist jörðin 60 hundruð.og þar hefur Bændaskólinn á Hvanneyri verið starfræktur frá 1889, þegar stofnaður var búnaðarskóli fyrir suðuramtið. Hvanneyrarhverfið samanstóð af höfuðbólinu Hvanneyri og þegar búnaðarskólinn var stofnaður voru jarðir og hjáleigur lagðar undir skólann. Voru þetta Svíri, Ásgarður, Tungutún, Bárustaðir, Staðarhóll, Kista og Hamrakot. Árið 1907 urðu breytingar á starfi skólans, námið varð fjölþættara og bóknám aukið og hét hann eftir það Bændaskólinn á Hvanneyri. Framhaldsnám í búvísindum hófst þar svo 1947 og myndaðist þar þéttbýli í kjölfarið. Bútæknideild Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins hefur haft þar aðsetur og aðstöðu síðan 1965 og í dag er á staðnum Landbúnaðarháskóli Íslands og er aðal lífæð staðarins. Á Hvanneyri áttu 303 lögheimili þann 1. desember 2007.