Tangahús stendur svo til í fjöruborðinu neðst á tanganum á Borðeyri. Úr gluggum hússins er auðveldlega hægt að fylgjast með fuglalífi staðarins, selir sjást nokkuð oft nálgast fjöruna mót suðri og stundum verður vart við smáhveli. Gönguferðir um næsta nágrenni er góður kostur og má benda á að morgnar og kvöld eru ákjósanlegur tími hvað það varðar. Þá er hvað lygnast, því um hádegisbil fer oft á tíðum innlagnar (hafgolu) að gæta.
Smátt og smátt hafa eigendur Tangahúss verið að taka það í gegn. Eins og er er gistipláss fyrir 16 manns í rúmum auk þess eru aukadýnur og barnaferðarúm í boði, sé þess óskað. Herbergin eru staðsett á 2.- og 3. hæð hússins.
Stefnt er að því að fjölga gistiplássum á næstunni. Þau verða staðsett á 1. hæð hússins.