Háteigskirkja stendur við gatnamót Háteigsvegar og Lönguhlíðar / Nóatúns í Reykjavík og er kirkja Háteigssafnaðar . Háteigsprestakall var stofnað með lögum 17. júlí 1952, en árið 1963 breyttust sóknarmörk með stofnun Grensásprestakalls. Háteigskirkja var vígð aðventu 1965.
Í upphafi var söfnuðurinn án kirkju en messað var í Fossvogskirkju og í hátíðarsal Sjómannaskólans. Bygging Háteigskirkju hófst í september 1957 en Halldór H. Jónsson arkitekt hannaði kirkjuna. Þórður Jasonarson, formaður sóknarnefndar tók fyrstu skóflustunguna. Þegar Sigurbjörn Einarsson biskup vígði kirkjuna í árslog 1965 var ýmsu ólokið. Með tilkomu safnaðarheimilis 1996 gerbreyttist aðstaða fyrir allt starf safnaðarins en safnaðarheimilið stendur norðan við kirkjuna og er tengt með glergangi við kirkjuna sjálfa.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson