Tjaldsvæðið að Laugalandi í Rangárvallasýslu er í um 6 kílómetra frá þjóðvegi 1 og er beygt hjá
Landvegamótum upp Landveg nr. 26, sama afleggjara og að Galtalækjarskógi. Vegalengd frá Selfossi
er 35 km og frá Reykjavík eru 90 km.
Sími tjaldvarðar er 8956543.
Um er að ræða mjög skjólsælt og gott FJÖLSKYLDUTJALDSVÆÐI. Ró verður að vera komin á svæðið
um miðnætti. Falleg náttúra er að Laugalandi og því kjörið að fara í gönguferðir um svæðið.
Aðstaðan
Góð aðstaða fyrir börn
Nýlega var tjaldsvæðið stækkað og er nú skipt upp í tvö megin svæði. Á svæðinu er mjög góð aðstaða
fyrir börn. Tveir sparkvellir eru á staðnum, einn gervigrasvöllur og einn malarvöllur. Þrír leikvellir fyrir
börn, þar af einn m.a. með aparólu og trampólínum.
Sundlaug með heitum pottum, rennibraut og gufu er á staðnum. Á tjaldstæðinu eru útigrill, útiborð,
rotþró fyrir ferðaklósett, rafmagn og fl..
Leyfilegt er að hafa hunda á tjaldsvæðinu ef þeir eru í bandi.
Opnunartími
15. maí til 15. sept
Heimild: Tjaldsvæðið að Laugalandi
Mynd: Tjaldsvæðið að Laugalandi