Tjörnin (eða Reykjavíkurtjörn) er grunnt stöðuvatn í miðbæ Reykjavíkur. Vatnið í Tjörnina kemur úr Vatnsmýrinni sunnan við hana og rennur úr henni um Lækinn sem rennur undir Lækjargötu til sjávar í víkinni. Við Tjörnina standa margar merkilegar byggingar, þar á meðal Ráðhús Reykjavíkur, Iðnaðarmannahúsið, Tjarnarskóli, Listasafn Íslands og Fríkirkjan í Reykjavík. Við Tjörnina er einnig Hljómskálagarðurinn, eini lystigarðurinn í miðborg Reykjavíkur. Í og við Tjörnina er mikið fuglalíf. Vinsæl afþreying hjá foreldrum með ung börn er að fara niður að Tjörn og „gefa öndunum“ (þ.e. brauðmola).
Mynd: Anton Stefánsson