Langjökull er annar stærsti jökull Íslands, um 950 km² að stærð og hæsti punktur hans í 1.355 m hæð. Jökullinn er vestan við Hofsjökul á miðhálendi Íslands. Er hann talinn þekja tvær eldstöðvar. Austan undir jöklinum er jökullónið Hvítárvatn en það er upphaf Hvítár.