Blönduós

Ósk
Séð

Norðurland

882 Manns

Sjá á korti

1286 skoðað

Blönduós er bæjarfélag á Norðvesturlandi, við ósa Blöndu, eins og nafnið bendir til. Byggðin á Blönduósi stendur í kvos undir bröttum marbökkum, báðum megin Blöndu, og eru bakkarnir víðast um 40 m háir. Bærinn er byggður í landi jarðanna Hjaltabakka og Hnjúka, vestan ár (eða sunnan ár, eins og heimamenn segja) og Ennis austaan (norðan) ár. Þjóðvegur 1 liggur í gegnum Blönduós.

Bærinn var upphaflega í tveimur sveitarfélögum, byggðin sunnan ár tilheyrði Torfalækjarhreppi en norðan ár Engihlíðarhreppi, en árið 1914 var Torfalækjarhreppi skipt og byggðin sunnan ár varð að sérstökum hreppi, Blönduóshreppi. Þann 1. febrúar 1936 var byggðin norðan ár svo sameinuð afganginum af kauptúninu. Kaupstaðarréttindi fékk hann 4. júlí 1988 og kallaðist þá Blönduósbær og hélst það nafn áfram við sameiningu við Engihlíðarhrepp 9. júní 2002.

Blönduóss er fyrst getið sem lendingarstaðar í Landnámabók og víða í Íslendingasögum er talað um skipakomur þangað en á síðari öldum virðist ekki hafa verið siglt þangað fyrr en á 19. öld. Eini verslunarstaðurinn í Húnaþingi var þá Höfðakaupstaður (Skagaströnd). Mörgum Húnvetningum þótti þó langt að sækja verslun þangað og þann 1. janúar 1876 var Blönduós löggiltur sem verslunarstaður. Sumarið eftir voru útmældar nokkrar verslunarlóðir og tveir verslunarskúrar reistir. Kaupfélag Austur-Húnvetninga fékk útmælda lóð 1896 og árið 1909 var reist steinsteypt verslunarhús sem enn stendur.

Íbúðarhús risu einnig kringum verslanirnar. Árið 1890 voru 52 íbúar á Blönduósi og um aldamótin voru þeir orðnir 106. Árið 1920 voru á Blönduósi 11 steinhús, 15 timburhús og 31 torfbær. Lögferja kom á ósa Blöndu um það bil sem byggð hófst þar og brú var svo reist á árunum 1896-1897 og var mjög mikil samgöngubót og tengdi líka þorpið, sem var að byggjast upp báðum megin árinnar. Núverandi brú var reist 1962-1963. Á árunum 1994-1895 var gerð bryggja utan við ána og varð Blönduós þá fastur viðkomustaður strandferðaskipa.
Kvennaskóli Húnvetninga var fluttur á Blönduós 1901 og var núverandi skólahús reist 1912. Skólinn starfaði allt til 1978 en var þá lagður niður og eru Textílsetur Íslands og Heimilisiðnaðarsafnið nú í húsakynnum skólans. Á Blönduósi er einnig Hafíssetrið í Hillebrandtshúsi og verið er að koma upp Laxasetri Íslands í bænum.
Gamla kirkjan á Blönduósi var flutt þangað frá Hjaltabakka 1894 og reist sunnan ár. Hún er nú friðuð en ný kirkja var reist norðan ár 1993. Prestssetur hefur verið á Blönduósi frá 1968. Sýslumaður Húnvetninga hefur haft aðsetur á Blönduósi frá 1897 og sama ár varð þar læknissetur. Sjúkrahúsið, Héraðshæli Austur-Húnvetninga, var tekið í notkun 1956.
Atvinnulíf Blönduóss byggist á margs konar matvælaiðnaði og öðrum léttum iðnaði, svo og verslun og þjónustu við íbúa héraðsins og ferðamenn.
Á Blönduósi hefur verið sjálfvirk veðurathugunarstöð Veðurstofunnar síðan 1998.

Blönduós
Þriðjudagur
17:00
3°c
5.6 NE
Þriðjudagur
18:00
2.8°c
6.1 NE
Þriðjudagur
19:00
2.6°c
6.1 NE
Þriðjudagur
20:00
2.3°c
6.6 NE
Þriðjudagur
21:00
2°c
7.9 E
Þriðjudagur
22:00
1.8°c
8.1 E
Þriðjudagur
23:00
1.5°c
7.6 NE
Miðvikudagur
0:00
1.2°c
7.2 NE
Miðvikudagur
1:00
1.1°c
7.0 NE
Miðvikudagur
2:00
0.9°c
6.6 NE
Miðvikudagur
3:00
0.6°c
5.9 NE
Miðvikudagur
4:00
0.2°c
5.5 E
Miðvikudagur
5:00
0°c
5.7 E
Miðvikudagur
6:00
-0.1°c
4.8 E
Miðvikudagur
7:00
-0.2°c
3.3 SE
Miðvikudagur
8:00
-0.2°c
2.2 SE
Miðvikudagur
9:00
-0.2°c
2.5 S
Miðvikudagur
10:00
-0.2°c
2.6 S
Miðvikudagur
11:00
0°c
2.4 S
Miðvikudagur
12:00
0.3°c
2.1 SW
Miðvikudagur
13:00
0.6°c
2.1 SW
Miðvikudagur
14:00
0.6°c
2.2 SW
Miðvikudagur
15:00
0.6°c
2.0 SW
Miðvikudagur
16:00
0.6°c
2.2 SW
Miðvikudagur
17:00
0.8°c
2.6 SW
Miðvikudagur
18:00
0.9°c
2.2 SW
Miðvikudagur
19:00
1.1°c
2.2 S
Miðvikudagur
20:00
0.9°c
2.2 S
Miðvikudagur
21:00
0.7°c
3.2 SE
Miðvikudagur
22:00
0.6°c
4.9 SE
Miðvikudagur
23:00
0.1°c
5.9 SE
Fimmtudagur
0:00
-0.2°c
6.2 SE
Fimmtudagur
1:00
0°c
5.3 SE
Fimmtudagur
2:00
0.2°c
4.8 SE
Fimmtudagur
3:00
0.3°c
4.0 S
Fimmtudagur
4:00
0.3°c
3.4 S
Fimmtudagur
5:00
0.4°c
5.4 W
Fimmtudagur
6:00
0.6°c
7.9 N
Fimmtudagur
7:00
0.6°c
7.7 N
Fimmtudagur
8:00
0.5°c
7.0 N
Fimmtudagur
9:00
0.4°c
6.3 N
Fimmtudagur
10:00
0.3°c
6.8 N
Fimmtudagur
11:00
0.3°c
7.4 N
Fimmtudagur
12:00
0.8°c
7.1 N
Fimmtudagur
13:00
0.9°c
7.1 N
Fimmtudagur
14:00
0.9°c
6.9 N
Fimmtudagur
15:00
1°c
6.7 N
Fimmtudagur
16:00
1.2°c
5.9 N
Fimmtudagur
17:00
1.1°c
9.8 NE
Fimmtudagur
18:00
1°c
11.6 NE
Fimmtudagur
19:00
0.7°c
11.7 N
Fimmtudagur
20:00
0.4°c
11.1 N
Fimmtudagur
21:00
0°c
10.1 N
Fimmtudagur
22:00
-0.3°c
9.0 N
Fimmtudagur
23:00
-0.4°c
9.0 N
Föstudagur
0:00
-0.7°c
9.2 N
Föstudagur
1:00
-0.8°c
8.9 N
Föstudagur
2:00
-0.6°c
9.6 N
Föstudagur
3:00
0.3°c
11.0 N
Föstudagur
4:00
0.2°c
9.7 N
Föstudagur
5:00
0.6°c
9.3 N
Föstudagur
6:00
0.8°c
10.3 N
Föstudagur
12:00
1.4°c
7.1 NW
Föstudagur
18:00
1.5°c
6.4 NW
Laugardagur
0:00
1.3°c
4.5 NW
Laugardagur
6:00
0.9°c
2.9 NW
Laugardagur
12:00
1.2°c
2.7 N
Laugardagur
18:00
1.1°c
5.4 N
Sunnudagur
0:00
1°c
3.1 N
Sunnudagur
6:00
0.1°c
2.3 NE
Sunnudagur
12:00
1.4°c
6.7 NE
Sunnudagur
18:00
1.1°c
7.1 NE
Mánudagur
0:00
1.2°c
7.9 NE
Mánudagur
6:00
1°c
7.1 NE
Mánudagur
12:00
1.9°c
6.0 NE
Mánudagur
18:00
2.6°c
8.9 NE
Þriðjudagur
0:00
2.7°c
13.8 NE
Þriðjudagur
6:00
3.6°c
6.4 NE
Þriðjudagur
12:00
3.8°c
1.9 NE
Þriðjudagur
18:00
3°c
2.9 NE
Miðvikudagur
0:00
2.2°c
1.4 N
Miðvikudagur
6:00
2.8°c
3.4 N
Miðvikudagur
12:00
3.4°c
0.4 SW
Miðvikudagur
18:00
2.8°c
2.1 SW
Fimmtudagur
0:00
2.6°c
1.6 NW
Fimmtudagur
6:00
2.6°c
2.1 N
Fimmtudagur
12:00
3°c
0.7 SE
Fimmtudagur
18:00
4°c
3.5 NE


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur