Sæferðir í Stykkishólmi hafa yfir 20 ára reynslu í skemmtisiglingum á Breiðafirði.
Fyrirtækið var stofnað árið 1986 og hefur vaxið ört síðan og er í dag eitt af stærstu afþreyingarfyrirtækjum á landsbyggðinni.
Í dag geta viðskiptavinir okkar valið úr nokkrum tegundum ferða ásamt því að hægt er að sérhanna ferðir eftir þörfum.
Hefur þú smakkað Víkinga sushi? Á háannatímanum bjóðum við upp á allt að fjórar bátsferðir á dag. Þessar ferðir eru Ævintýraferðir með VíkingaSushi smakki, fugla og náttúrukoðun. Viðskiptavinir geta fengið að smakka ferska hörpuskel og ígulkerahrogn. Soja, wasabi og engifer gera þetta að upplifun sem enginn gleymir. Einnig er hægt að setja upp sömu ferðir
utan háannatíma eftir þörfum.
Sæferðir sjá einnig um Ferjuna Baldur sem siglir frá Stykkishólmi yfir á Vestfirði. Á leiðinni er hægt að slaka á og njóta útsýnisins en á sama tíma spara tíma þar sem siglingin tekur skemmri tíma en að keyra.
Heimsókn í Flatey er frábær upplifun, hægt er að stoppa í Flatey á milli ferða ásamt því að fara þangað í dagsferð.
Láki Tours í samstarfi við Sæferðir bjóða upp á “Big five whale watching” frá Ólafsvík við Snæfellsnes þjóðgarðinn. Þetta svæði bíður upp á bestu möguleikana á því að sjá “The big five”: Steypireyð, Hnúfubak, Hrefnu, Langreyðu og háhyrninga.
Nánari upplýsingar, verð og áætlanir á www.saeferdir.is