ÍSLAND Í HNOTSKURN
Staðir
Watrerfalls
Mountains
Places
Lakes
Caves
Nature pools
Camping
Hot Springs
Churches
Islands
Glacires
Hills
Fjords
Amazing Nature
Afþreying
Gisting
Veitingar
Golf
Swimming Pools
Boat Trips
Rafting
Whale Watching
Fun for kids
Festivals
Ski
Kort
TOP 10
Watrerfalls
Places
Nature pools
Caves
Um Síðuna
Site
Anton Stefánsson
Contact
Login with Facebook
Mín síða
LOGOUT
Apavatn
Suðvesturland
Sjá á korti
1101 skoðað
Apavatn er eitt af stærstu stöðuvötnum landsins, um 14 km² að flatarmáli sunnan Laugarvatns. Nafnið er talið koma af orðinu ap sem merki leðju eða leir. Apavatn er 59 m. yfir sjó. Vatnið er allt grunnt og mesta dýpi 3 m. Mesta lengd 6.8 km. Nokkrar smáár renna í vatnið frá hæðunum í kring. Að sunnan kemur Stangalækur. Suð vestan í vatnið rennur Apá og norðan Grafará, og er hún vatnsmest. Hagaós er eina frárennslið úr vatninu og rennur í Brúará. Bændur stunda netaveiði í vatninu allt árið en vatnið er ekki gjöfult stangveiðivatn. Helst veiðist þar bleikja sem er sitt hvoru megin við pundið. Svolítið er um urriða, en þeir eru mun vænni, allt að 10 pund og kýla sig út af hornsílum sem ógrynni er af í vatninu. Lax á greiðan aðgang að vatninu um Hagaós, en hann er sjaldséður. Sumarbústaðabyggð hefur verið vaxandi við vatnið á undanförnum árum. Á fyrstu áratugum kristni var Apavatn frægast vatna á landi hér. Bar það til að Sighvatur Þórðarson er sagður hafa fengið skáldíþrótt sína úr fiskhöfði af fiski sem hann veiddi í vatninu. Eigi hefur orðið vart við þess lags fiska á þeim slóðum síðan. Vatnið er þekkt úr Sturlungu, þegar Sturla Sighvatsson sveik Gissur Þorvaldsson í Apavatnsför árið 1238. Sturla fór suður með 300 menn og bað Gissur að finna sig við Apavatn. Gissur kom með 40 menn, Gissur og Sturla gengu saman í bróðerni með vatninu. Sturla bað 2 menn að gæta Gissurar og skipar svo mönnum hans að leggja niður vopnin. Þá spyr Gissur Sturlu, hví hann láti leggja hendur á hann. Sturla bað hann ekki efast um að hann ætlaði sér meiri hlut en öðrum mönnum á Íslandi. Lét hann þá Gissur vinna sér trúnaðarreið og sverja að fara utan. Þóttist Gissur finna að Sturla mundi hafa komið til hugar að stytta honum aldur og hyggur á að koma hefndum fram á Sturlu. Gissur lét til skarar skríða og dró að sér lið af Suðurlandi og bandamaður hans Kolbeinn ungi úr Skagafirði og Húnavatnssýslu. Sturla dró sér lið af Vesturlandi og Sighvatur faðir hans úr Eyjarfirði og Þingeyjarsýslu.
Leiðarlýsing á þennan stað
Myndir
Eigandi: Anton Stefánsson
Eigandi: Anton Stefánsson
MÁN
08-03-2021
4°C
VSV 3
ÞRI
09-03-2021
2°C
ANA 8
MIÐ
10-03-2021
-1°C
N 20
FIM
11-03-2021
4°C
A 6
FÖS
12-03-2021
3°C
NA 2
LAU
13-03-2021
2°C
ASA 2
SUN
14-03-2021
3°C
NNA 2
Gögn eru sótt frá Vedur.is, veður stöðin heitir: Þingvellir
Nálægir staðir
Miðdalskirkja
Tjaldstæðið á Laugarvatni
Vígðalaug
Laugarvatn Fontana
Laugarvatn
Sundlaugin á Laugarvatni
Stóruborgarkirkja
Skálholtskrikja
Sundlaugin Borg
Íþróttamiðstöðin Borg
Brúarfoss
Slakki
Kóngsvegurinn
Kiðjabergsvöllur
Skeiðalaug
Sundlaugin Reykholti
Laugavatnshellir
Urriðafoss
Úthlíðarkirkja
Úthlíðarkirkja
Skjaldbreiður
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com