Hvannadalshnjúkur

Ósk
Séð

Suðurland

Sjá á korti

903 skoðað

Hvannadalshnúkur er hæsti tindur eldkeilunnar undir Öræfajökli og jafnframt hæsti tindur Íslands. Samkvæmt nýjustu mælingu er hæð hans 2.109,6[1] metrar yfir sjávarmáli. Tindurinn er staðsettur innan Skaftafellsþjóðgarðs og er vinsæll hjá fjallgöngufólki, reyndu sem og óreyndu. Tindurinn er ekki flókinn uppgöngu og þarfnast ekki mikillar reynslu eða tækni í fjallgöngum, gangan krefst samt mikils úthalds þar sem gengið er á tindinn og niður aftur á sama deginum. Hækkunin er rúmir 2000 metrar sem er býsna mikil, gangan tekur oftast 12-14 klst í heild.

Hvannadalshnúkur hefur tvær almennar uppgönguleiðir. Önnur þeirra er fremur erfið og tæknileg, aðallega fyrir reynda fjallagarpa en hin leiðin er öruggari og mun auðveldari. Síðarnefnda leiðin er mjög vinsæl, sérstaklega nú til dags og verður henni hér lýst. Göngunni er skipt í 3 þrep. Fyrsta þrep er venjuleg en frekar brött ganga frá 100 metrum upp í 1100 metra. Þar er áð og farið í línur. Oftast eru línurnar flokkaðar eftir þrótti og hrausti göngumannanna, þ.e.a.s. þeir með mesta hraðann og úthaldið eru saman í línu, á meðan fólk sem vill taka göngunni fremur rólega eru saman. Með þessu kerfi helst gangan í samræmi við getu hvers og eins. Í hverri línu er einn leiðsögumaður sem gengur fremst, sprungur kunna nefnilega að leynast þegar ofar dregur þar sem gangan er núna einungis á jökli það sem eftir er. Annað þrep er frá 1100 metrum upp í 1800 metra, þessi partur af göngunni er mjög einhæfur og reynir á þolinmæði og viljastyrk þátttakenda. Þessi 700 metra hækkun er gengin einungis á mjallhvítum jöklinum þangað til komið er upp á Öræfajökulinn sjálfan, á jafnsléttu. Þar tekur við þriðja og síðasta þrep þar sem gengið er á jafnsléttu í talsverðan tíma og þangað til að komið er að hnúknum sjálfum. Hann stendur nokkuð sjálfstæður upp úr jöklinum og er um 200 metra hár. Undir hnúknum þarf að setja á sig brodda vegna þess hversu bratt er síðasta spölinn. Af toppi Íslands er gríðarlega fallegt og gott útsýni ef skyggni er gott. Það sést m.a. til Hrútfjallstinda, Þumals og fleiri fjalla ofan Skaftafell sem virka fremur lítil frá þessu sjónarhorni.

Heimild: Sjá hér

Hvannadalshnjúkur
Þriðjudagur
3:00
-15.6°c
4.9 NE
Þriðjudagur
4:00
-15°c
5.0 NE
Þriðjudagur
5:00
-14.4°c
4.6 S
Þriðjudagur
6:00
-14.2°c
2.6 SW
Þriðjudagur
7:00
-14.4°c
2.3 NW
Þriðjudagur
8:00
-14.9°c
2.1 N
Þriðjudagur
9:00
-15.1°c
2.3 N
Þriðjudagur
10:00
-15.7°c
2.8 N
Þriðjudagur
11:00
-15.9°c
2.8 N
Þriðjudagur
12:00
-15.9°c
3.4 NE
Þriðjudagur
13:00
-15.3°c
2.8 N
Þriðjudagur
14:00
-15.8°c
2.9 N
Þriðjudagur
15:00
-15.1°c
3.3 N
Þriðjudagur
16:00
-15.3°c
3.5 N
Þriðjudagur
17:00
-15.1°c
3.5 NE
Þriðjudagur
18:00
-14.9°c
3.3 SE
Þriðjudagur
19:00
-14.5°c
3.0 SE
Þriðjudagur
20:00
-14.5°c
2.6 SE
Þriðjudagur
21:00
-14.8°c
2.6 SE
Þriðjudagur
22:00
-15.4°c
2.5 SE
Þriðjudagur
23:00
-16°c
2.8 SE
Miðvikudagur
0:00
-16.4°c
2.7 E
Miðvikudagur
1:00
-15.6°c
2.5 E
Miðvikudagur
2:00
-15.3°c
2.5 SE
Miðvikudagur
3:00
-15.7°c
2.5 E
Miðvikudagur
4:00
-15.8°c
2.6 E
Miðvikudagur
5:00
-16.2°c
2.7 E
Miðvikudagur
6:00
-16.1°c
2.6 SE
Miðvikudagur
7:00
-15.1°c
2.7 S
Miðvikudagur
8:00
-14.3°c
2.8 S
Miðvikudagur
9:00
-14.9°c
2.7 S
Miðvikudagur
10:00
-14.7°c
2.4 S
Miðvikudagur
11:00
-15.2°c
2.4 SE
Miðvikudagur
12:00
-15.1°c
2.4 SE
Miðvikudagur
13:00
-14.9°c
1.9 SE
Miðvikudagur
14:00
-14.8°c
1.8 SE
Miðvikudagur
15:00
-14.7°c
1.7 SE
Miðvikudagur
16:00
-14.6°c
2.0 SE
Miðvikudagur
17:00
-14.6°c
2.3 SE
Miðvikudagur
18:00
-14.9°c
2.4 SE
Miðvikudagur
19:00
-15.9°c
2.5 E
Miðvikudagur
20:00
-17.1°c
2.5 E
Miðvikudagur
21:00
-17.5°c
2.7 SE
Miðvikudagur
22:00
-17.8°c
2.6 E
Miðvikudagur
23:00
-18.1°c
2.6 SE
Fimmtudagur
0:00
-18.1°c
2.5 SE
Fimmtudagur
1:00
-18.3°c
2.4 NE
Fimmtudagur
2:00
-19°c
2.6 NE
Fimmtudagur
3:00
-19.3°c
2.8 NE
Fimmtudagur
4:00
-19.5°c
3.2 NE
Fimmtudagur
5:00
-19°c
3.6 NE
Fimmtudagur
6:00
-18.8°c
3.4 NE
Fimmtudagur
7:00
-18°c
3.9 E
Fimmtudagur
8:00
-16°c
4.4 E
Fimmtudagur
9:00
-15.4°c
5.8 E
Fimmtudagur
10:00
-15.6°c
6.1 NE
Fimmtudagur
11:00
-15.3°c
6.3 NE
Fimmtudagur
12:00
-14.4°c
6.2 SE
Fimmtudagur
13:00
-13.5°c
5.9 SE
Fimmtudagur
14:00
-13°c
6.4 SE
Fimmtudagur
15:00
-12.7°c
6.4 SE
Fimmtudagur
16:00
-12.4°c
7.0 SE
Fimmtudagur
17:00
-12.4°c
6.7 E
Fimmtudagur
18:00
-12.5°c
6.2 NE
Föstudagur
0:00
-10.7°c
2.3 NW
Föstudagur
6:00
-16.1°c
2.2 N
Föstudagur
12:00
-13.5°c
0.1 N
Föstudagur
18:00
-10.7°c
1.6 E
Laugardagur
0:00
-8.1°c
2.8 E
Laugardagur
6:00
-4.5°c
1.8 NE
Laugardagur
12:00
-4.8°c
2.3 SW
Laugardagur
18:00
-8.3°c
1.1 NE
Sunnudagur
0:00
-9.8°c
0.5 N
Sunnudagur
6:00
-11.1°c
0.8 W
Sunnudagur
12:00
-12.9°c
1.4 NE
Sunnudagur
18:00
-8.8°c
2.4 SE
Mánudagur
0:00
-6.8°c
3.9 S
Mánudagur
6:00
-8°c
0.7 S
Mánudagur
12:00
-10.3°c
3.0 SW
Mánudagur
18:00
-11°c
1.6 W
Þriðjudagur
0:00
-15.5°c
1.5 NW
Þriðjudagur
6:00
-14°c
0.6 SW
Þriðjudagur
12:00
-15.2°c
1.5 W
Þriðjudagur
18:00
-13.6°c
3.7 SW
Miðvikudagur
0:00
-14.4°c
2.5 W
Miðvikudagur
6:00
-12°c
1.0 N
Miðvikudagur
12:00
-5.9°c
6.1 SW
Miðvikudagur
18:00
-6.8°c
4.4 SW
Fimmtudagur
0:00
-9.4°c
6.7 SW
Fimmtudagur
6:00
-10.8°c
2.7 W


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur