Sundlaugin er 25 metra löng og 10,5 metra breið. Við hana er heitur pottur og vaðlaug.
Ný og glæsileg sundlaug var tekin í notkun á Hofsósi í Skagafirði 27.mars 2010. Laugin og þjónustuhúsið sem henni fylgir, er gjöf þeirra Lilju Pálmadóttur á Hofi og Steinunnar Jónsdóttur í Bæ til íbúa Skagafjarðar. Báðar eiga þær ættir rekja til Skagafjarðar og með þessari gjöf vilja þær sýna í verki velvilja til samfélagsins.
Nýja sundlaugin og umhverfi hennar er einkar glæsilegt. Lauginni var valinn staður niður á sjávarbakka, sunnarlega í þorpinu, ofan við svonefnda Staðarbjargarvík. Laugin er þannig frágengin að þegar synt er frá suðri til norðurs rennur vatnsflötur laugarinnar saman við hafflötinn neðan hennar með beina stefnu á Drangey.
Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt hannaði mannvirkið, burðarvirki og lagnahönnun var í höndum Verkís ehf. og verktaki var Sveinbjörn Sigurðsson hf. Sundlaugin hefur verið tæp tvö ár í byggingu, en það voru þau Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú sem tóku fyrstu skólfustungu að henni í apríl 2008.