Hverfjall/Hverfell er stór, hringlaga sprengigígur, um 140 m djúpur og um 1000 m í þvermál. Hverfjall/Hverfell er í röð fegurstu og reglubundnustu sprengigígamyndana sem getur að líta á Íslandi og talið í röð þeirra stærstu sinnar tegundar á jörðinni. Telja má víst að gígurinn sé myndaður við sprengigos og er aldur þess áætlaður 2500 ár. Vinsælt er að ganga á Hverfjall/Hverfell en auðveld og aflíðandi leið liggur upp að norðvestan. Að sunnan er hins vegar allbrött leið á fjallið.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Formilock