Fjaðrárgljúfur er mikilfengleg náttúrusmíð sem sennilega hefur orðið til á síðjökulstíma fyrir u.þ.b níu þúsund árum. Gljúfrið er skammt vestan Kirkjubæjarklausturs við Lakaveg/Holtsveg. Fjaðrá fellur þar fram af heiðarbrúninni í tiltölulega breiðu og fallegu móbergsgljúfri sem er vel þess virði að gefa nánari gaum. Einfaldast er að aka að gljúfrinu eftir Lakavegi/Holtsvegi og ganga síðan upp með því til að skoða móbergsmyndanir og höggmyndir náttúrunnar betur. Það er einnig hægt að ganga upp eftir gljúfrinu sjálfu, en þá má búast við að talsvert þurfi að vaða. Fjaðrárgljúfur er á náttúruminjaskrá.
Sjá heimild