Miðjan reyndist vera í landi Skagfirðinga, nánar tiltekið í sveitarfélaginu Skagafirði.
Það voru Landmælingar Íslands sem reiknuðu miðjuna út en það er Ferðakúbburinn 4x4 sem stendur fyrir vígslu á vörðunni sem reist hefur verið á miðju Íslands norðaustan Hofsjökuls. Allstór hópur víða af að landinu mun taka þátt í athöfninni.
Aðdragandinn er sá að fyrir 2-3 árum síðan kom upp sú hugmynd meðal nokkurra félaga í Ferðaklúbbnum 4x4 að reisa stein á miðju Íslands. Í beinu framhaldi þess var haft samband við Landmælingar Íslands og sérfræðingar þar fengnir til að reikna út staðsetninguna.
Miðjan var reiknuð út með því að nota strandlínu í aðalgagnagrunni Landmælinga Íslands og var niðurstaðan eftirfarandi hnit: 64°59´11.4" N og 18°35´12.0" V.
Eyjar landsins voru ekki teknar með í útreikninginn. Staðurinn er suðaustan við svokallaðra Illviðrahnjúka í um 800 metra hæð yfir sjó.
Fyrir tveimur árum lögðu nokkrir félagar úr Ferðaklúbbnum 4x4 upp í leiðangur til að finna miðjuna. Ferðin gekk í alla staði vel og var ákveðið að reisa litla vörðu á staðnum til að byrja með.
Út frá því var farið í þá vinnu að finna stein á miðjuna sem gæti sómt sér vel. Steinninn, sem ákveðið var að nota, er stuðlaberg og kemur hann úr Hrunamannahreppi. Mjög brösuglega gekk að koma steininum á staðinn og fóru menn að velta því fyrir sér hvort steinninn væri tekinn úr álfabyggð.