Við höfnina í Gleðivík hefur verið komið fyrir glæsilegu listaverki eftir listamanninn Sigurð Guðmundsson. Listaverkið samanstendur af 34 eggjum jafnmargra fugla sem verpa í Djúpavogshreppi. Eggin eru úr granít , innflutt frá Kína og fylgja sömu lögun og eggin sem þau líkja eftir. Eggin er öll merkt með þeim fugli sem þau líkja eftir, bæði á íslensku og ensku. Eitt egg er stærst, en það er egg lómsins sem hefur verið valinn einkennisfugl fyrir svæðið.
Listaverkið er í góðu göngufæri frá þorpinu en frá miðju þorpsins er um 900 metrar í Gleðivík. .
Verkið var vígt þann 14. ágúst 2009. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá undirbúningi, vígsludeginum svo og af listaverkinu sjálfu.
.
Heimild:
Sjá hér